VERÐ OG ÞJÓNUSTUPAKKAR
Skýrt verð fyrir skýra þjónustu.
Fimm þjónustuleiðir fyrir ólíkar þarfir. Allir pakkar innihalda hýsingu, afrit, tæknilegt viðhald og 5 klst. á mánuði fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar.
Mögulegur stofnkostnaður, samningstími og uppsagnarfrestur koma fram í tilboði áður en þú samþykkir þjónustuna.
Vefur fyrir einyrkja
Einföld kynning á þér og þjónustunni þinni.
20.000 kr.
á mánuði · án VSK
- Einföld vefsíða
- Upplýsingar um þig og þjónustuna
- Sambandseyðublað
- Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald
- 5 klst. í efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar á mánuði
Fyrirtækjavefur
Skýr kynning á fyrirtækinu og því sem það býður.
30.000 kr.
á mánuði · án VSK
- Skipulag og hönnun vefs
- Þjónustulýsingar og fyrirtækjaupplýsingar
- Uppsetning samþykkts efnis og sambandseyðublaðs
- Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald
- 5 klst. í efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar á mánuði
Vefur í vexti
Fyrir fleiri þjónustusvið, meira efni og fjölbreyttari virkni.
45.000 kr.
á mánuði · án VSK
- Þjónusta fyrirtækjavefs
- Fleiri síðutegundir og efnisflokkar
- Kerfistengingar samkvæmt tilboði
- Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald
- 5 klst. í efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar á mánuði
Netverslun
Fyrir fyrirtæki sem vilja selja vörur á netinu.
55.000 kr.
á mánuði · án VSK
- Vöruflokkar og vörusíður
- Uppsetning kaup- og greiðsluferlis
- Afhendingarleiðir samkvæmt tilboði
- Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald
- 5 klst. í efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar á mánuði
Ferðavefur
Fyrir ferðaþjónustu sem vill kynna ferðir og taka við bókunum.
60.000 kr.
á mánuði · án VSK
- Kynning á ferðum og upplifunum
- Ferðalýsingar og upplýsingar fyrir gesti
- Bókunarferli og kerfistenging samkvæmt tilboði
- Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald
- 5 klst. í efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar á mánuði
Efnisuppfærslur fylgja öllum pökkum.
Í hverjum mánuði eru 5 klst. innifaldar fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar. Þú getur til dæmis sent okkur nýjan texta og myndir til birtingar eða beðið um smávægilegar breytingar á síðum.
Nýr tímapottur í hverjum mánuði
Ónýttir tímar falla niður um mánaðamót og flytjast ekki áfram. Fimm tímar duga yfirleitt vel og afar sjaldan þarf meiri tíma í venjulegar efnisuppfærslur.
Viðbótarvinna
Viðbótarvinna kostar 17.500 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund, án VSK. Ef óskað er eftir viðamiklum breytingum umfram innifalda þjónustu færðu tilboð áður en ráðist er í verkið. Viðbótarvinna hefst aðeins með samþykki þínu.
Nánar um þjónustuleiðirnar.
Hér sérðu hvernig pakkarnir eru afmarkaðir og hvaða atriði við förum yfir í tilboði.
Vefur fyrir einyrkja
Einföld vefsíða með helstu upplýsingum um þig og þjónustuna þína og sambandseyðublaði. Við ákveðum saman hvaða efni þarf að vera á síðunni.
Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald fylgja pakkanum ásamt mánaðarlegum tímum til efnisuppfærslna og einfaldra lagfæringa.
Fyrirtækjavefur
Við skipuleggjum, hönnum og smíðum kynningarvef með þjónustulýsingum, fyrirtækjaupplýsingum og leið til að hafa samband. Fjöldi síðna og umfang efnis koma fram í tilboði.
Uppsetning og tæknilegt viðhald viðbóta eru innifalin. Leyfis- og áskriftargjöld viðbóta frá öðrum aðilum greiðast sérstaklega. Netverslun, sérsmíði og flóknar kerfistengingar eru metnar sérstaklega.
Vefur í vexti
Fyrir fyrirtæki með fleiri þjónustusvið, fjölbreytt efni eða þörf fyrir tengingar við önnur kerfi. Við skipuleggjum síðutegundir, efnisflokka og valmyndir.
Tilboðið skilgreinir hvaða virkni og tengingar vefurinn þarf. Uppsetning og tæknilegt viðhald viðbóta eru innifalin. Leyfis- og áskriftargjöld viðbóta frá öðrum aðilum greiðast sérstaklega.
Netverslun
Við skipuleggjum vöruflokka, hönnum vörusíður og setjum upp samþykktar greiðslu- og afhendingarleiðir. Fjöldi vara, flutningur vörugagna og tengingar við birgða- eða bókhaldskerfi koma fram í tilboði.
Uppsetning og tæknilegt viðhald netverslunarviðbóta eru innifalin. Leyfis- og áskriftargjöld fyrir keyptar viðbætur frá öðrum aðilum greiðast sérstaklega. Þú færð upplýsingar um þann kostnað áður en viðbæturnar eru teknar í notkun.
Ferðavefur
Við skipuleggjum kynningu á ferðum og upplifunum og mótum leiðina að bókun. Umfang tengingar við bókunarkerfi, svo sem Bókun eða FareHarbor, kemur fram í tilboði.
Uppsetning og tæknilegt viðhald bókunarviðbóta eru innifalin. Leyfis- og áskriftargjöld fyrir bókunarkerfi frá öðrum aðilum greiðast sérstaklega. Þú færð upplýsingar um þann kostnað áður en kerfið er tekið í notkun.
Spurt um verð og þjónustu
Hvað felst í mánaðargjaldinu?
Þjónustan nær til hönnunar og smíði vefs samkvæmt tilboði og áframhaldandi hýsingar, afrita og tæknilegs viðhalds. Að auki fylgja 5 klst. á mánuði fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar. Upphaf greiðslna og greiðslufyrirkomulag koma fram í tilboði.
Er stofnkostnaður eða binding?
Mögulegur stofnkostnaður, samningstími og uppsagnarfrestur koma fram í tilboði áður en þú samþykkir þjónustuna.
Flytjast ónýttir tímar milli mánaða?
Nei. Fimm nýir tímar taka við í hverjum mánuði og ónýttir tímar fyrri mánaðar falla niður.
Hvað kostar viðbótarvinna?
Viðbótarvinna kostar 17.500 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund, án VSK. Viðamiklar breytingar umfram innifalda þjónustu eru metnar í tilboði áður en vinnan hefst.
Hvaða kostnaður getur bæst við?
Í Fyrirtækjavef og stærri pökkum eru uppsetning og tæknilegt viðhald viðbóta innifalin. Það sem getur bæst við eru leyfis- eða áskriftargjöld sem aðrir þjónustuaðilar innheimta, til dæmis fyrir sérhæfðar bókunarvélar eða keyptar netverslunarviðbætur. Þú færð upplýsingar um þann kostnað áður en viðbæturnar eru teknar í notkun.
Hvaða tækni verður notuð?
Við veljum tæknilausn út frá því sem vefurinn þarf að gera og hvernig honum verður sinnt. Við útskýrum valið og hvað það þýðir fyrir rekstur og viðhald.
Óviss um hvaða leið hentar?
Segðu okkur frá fyrirtækinu og því sem vefurinn þarf að gera. Við hjálpum þér að velja þjónustuleið og afmarka verkefnið.