UM PROXIMA
Reynsla af vefjum. Persónuleg þjónusta.
Proxima sameinar hönnun, smíði og umsjón vefja. Þú ert í beinu sambandi við Sigurð Hólm Gunnarsson, sem hefur unnið við vefi frá aldamótum.
SIGURÐUR HÓLM GUNNARSSON
Þú veist við hvern þú talar.
Proxima er vefþjónusta Sigurðar Hólm Gunnarssonar. Hann hefur unnið við hönnun, smíði og umsjón vefja frá aldamótum, bæði sjálfstætt og sem hönnuður hjá einkafyrirtækjum.
Hjá Proxima færðu aðstoð frá fyrstu hugmynd að daglegri umsjón. Markmiðið er að vefurinn kynni fyrirtækið þitt vel, nýtist viðskiptavinum þess og sé auðvelt að halda uppfærðum.
Góður vefur byrjar á góðu samstarfi.
Þú þekkir fyrirtækið þitt og fólkið sem þú þjónustar. Við hjálpum þér að koma þeirri þekkingu til skila með skýru efni, vandaðri hönnun og virkni sem hentar verkefninu.
Beint samband við þann sem vinnur verkið.
Þú ræðir við þann sem hannar, smíðar og heldur utan um vefinn þinn. Við förum saman yfir valkosti og tölum skýrt um umfang, kostnað og það sem þarf að gera.
Tæknin valin eftir þínum þörfum.
Við veljum tæknina eftir því hvað vefurinn þarf að gera og hvernig þú vilt sinna honum. Við förum yfir valkostina með þér og útskýrum hvað þeir þýða fyrir efnisbreytingar, viðhald og frekari þróun.
Aðstoð eftir opnun.
Samstarfið heldur áfram þegar vefurinn opnar. Hýsing, afrit og tæknilegt viðhald fylgja öllum pökkum, ásamt mánaðarlegum tímum fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar.
Segðu okkur frá vefnum sem þig vantar.
Hvort sem þú þarft nýjan vef eða aðstoð með þann sem þú ert með byrjum við á samtali um þarfir þínar og möguleikana.