HÝSING OG UMSJÓN
Vefurinn í góðum höndum.
Við sjáum um hýsingu og tæknilegt viðhald og aðstoðum þig við breytingar á vefnum. Þú ert í beinu sambandi við þann sem þekkir uppsetninguna og getur hjálpað þegar eitthvað kemur upp.
Við höldum utan um vefinn.
Vefur þarf viðhald eftir opnun. Við sjáum um tæknilega umsjón og hjálpum þér að halda upplýsingum réttum og uppfærðum.
Í öllum pökkum eru 5 klst. á mánuði innifaldar fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar, svo sem að setja inn texta og myndir eða laga smávægileg atriði á síðum.
Tímarnir núllast um hver mánaðamót. Ónýttir tímar flytjast ekki milli mánaða.
Fimm tímar duga yfirleitt vel fyrir mánaðarlegar efnisuppfærslur og afar sjaldan þarf meiri tíma í slíkar breytingar. Ef óskað er eftir viðamiklum breytingum umfram innifalda þjónustu færðu tilboð áður en ráðist er í verkið.
Hýsing og öryggisafrit.
Við höldum utan um hýsingu vefsins og afritun gagna. Fyrirkomulag afrita og endurheimtar miðast við þarfir vefsins og upplýsingarnar sem hann geymir.
Vöktun og aðstoð.
Við vöktum rekstur vefsins til að greina vandamál. Ef þú tekur eftir bilun eða eitthvað virkar ekki eins og það á að gera hefurðu beint samband við okkur.
Uppfærslur og viðhald.
Við sinnum reglulegum hugbúnaðaruppfærslum og tæknilegu viðhaldi. Þegar breytingar eru gerðar yfirförum við helstu aðgerðir vefsins, svo sem eyðublöð, bókanir eða kaupferli, eftir því sem við á.
Breytingar á efni og virkni.
Þarftu að uppfæra þjónustulýsingu, skipta um myndir eða bæta við síðu? Við aðstoðum við efnisbreytingar og metum með þér þörf fyrir nýja virkni. Við förum yfir umfang stærri viðbóta með þér áður en vinnan hefst.
Ertu þegar með vef?
Við skoðum núverandi vef og metum hvort við getum tekið við hýsingu og umsjón. Þú færð yfirlit yfir það sem þarf að gera áður en flutningur eða viðhald hefst.
Yfirferð á núverandi vef.
Við skoðum uppsetningu, hýsingu og helstu virkni og athugum hvort lagfæringa sé þörf.
Skipulagður flutningur.
Ef flytja þarf vefinn tökum við afrit, undirbúum yfirfærsluna og prófum hann á nýjum stað. Við skoðum líka tölvupóst og tengd kerfi áður en léninu er beint á nýju hýsinguna.
Samkomulag um framhaldið.
Við ákveðum með þér hvernig viðhaldi, efnisbreytingum og aðstoð verður háttað og hvernig þú nýtir innifalda tíma.
Spurt um hýsingu og umsjón
Hvað er innifalið í umsjón?
Allir pakkar innihalda hýsingu, afrit og tæknilegt viðhald.
Í öllum pökkum eru 5 klst. á mánuði innifaldar fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar, svo sem að setja inn texta og myndir eða laga smávægileg atriði á síðum.
Tímarnir núllast um hver mánaðamót. Ónýttir tímar flytjast ekki milli mánaða.
Getið þið bætt við nýrri virkni?
Já. Við metum til dæmis bókanir, eyðublöð og tengingar við önnur kerfi. Inniföldu tímarnir eru fyrst og fremst ætlaðir til efnisuppfærslna og einfaldra lagfæringa. Viðamiklar breytingar og ný virkni eru afmörkuð í tilboði áður en vinnan hefst.
Hvernig bið ég um breytingu?
Sendu okkur slóð á síðuna og lýstu því sem þú vilt breyta. Láttu nýjan texta eða myndir fylgja ef það á við. Við förum yfir beiðnina og látum þig vita ef hún fer umfram innifalda tíma.
Er breytingavinna ótakmörkuð?
Nei. Innifaldar eru 5 klst. á mánuði fyrir efnisuppfærslur og einfaldar lagfæringar.
Tímarnir núllast um hver mánaðamót. Ónýttir tímar flytjast ekki milli mánaða.
Viðbótarvinna kostar 17.500 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund, án VSK. Við fáum samþykki þitt áður en viðbótarvinna hefst.
Fimm tímar duga yfirleitt vel fyrir mánaðarlegar efnisuppfærslur og afar sjaldan þarf meiri tíma í slíkar breytingar. Ef óskað er eftir viðamiklum breytingum umfram innifalda þjónustu færðu tilboð áður en ráðist er í verkið.
Þarftu aðstoð með vefinn þinn?
Sendu okkur slóðina og segðu stuttlega hvað þú vilt bæta eða fá aðstoð við. Við skoðum málið og ræðum við þig um framhaldið.