Fara í efni

Persónuvernd hjá Proxima

Síðast uppfært 16. október 2026.

Við leggjum áherslu á að fara af virðingu og varúð með upplýsingar um þig. Hér er útskýrt hvaða upplýsingar Proxima notar þegar þú hefur samband eða óskar eftir þjónustu, hvers vegna þeirra er þörf og hvaða réttindi þú hefur.

Ábyrgð og samskipti

Proxima er vefþjónusta Sigurðar Hólm Gunnarssonar. Sigurður Hólm Gunnarsson er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga vegna samskipta og þjónustu Proxima. Fyrirspurnir og beiðnir um persónuvernd má senda í gegnum sambandssíðuna.

Upplýsingar sem þú veitir

Í sambandseyðublaðinu gefur þú upp nafn, netfang og skilaboð. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að senda fyrirspurn. Þú getur einnig gefið upp fyrirtæki, slóð á vef og hvaða þjónustu þú hefur áhuga á; þeir reitir eru valfrjálsir.

Við þjónustukaup geta bæst við tengiliða-, samnings- og reikningsupplýsingar sem þarf til að vinna verkefnið og halda utan um viðskiptin. Sendu aðeins þær upplýsingar sem þarf til að afgreiða erindið. Ekki senda lykilorð eða viðkvæmar persónuupplýsingar í almennu fyrirspurnarformi.

Tilgangur og heimildir

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara fyrirspurnum, gera tilboð, undirbúa og veita þjónustu og halda utan um viðskiptasambandið. Vinnsla þjónustubeiðna byggir á nauðsynlegum undirbúningi að samningi eða framkvæmd hans. Vinnsla bókhaldsgagna byggir á lagaskyldu. Nauðsynleg vinnsla til að tryggja rekstur og öryggi vefsins byggir á lögmætum hagsmunum, að teknu tilliti til réttinda þinna.

Varðveisla og eyðing

Upplýsingar eru varðveittar meðan þeirra er þörf vegna samskipta, verkefna og þjónustu. Þeim er eytt þegar ekki er lengur þörf á þeim, nema lagaskylda eða nauðsyn þess að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfu krefjist áframhaldandi varðveislu. Bókhaldsgögn eru varðveitt samkvæmt lögbundnum varðveislutíma.

Kerfi og þjónustuaðilar

Fyrirspurnir berast í gegnum sambandseyðublað vefsins og tölvupóst. Hýsingar- og tölvupóstþjónustuaðilar koma að geymslu og miðlun gagna eftir því sem þarf vegna þjónustunnar. Aðgangur að upplýsingum á að takmarkast við þá sem þurfa hann til að sinna verkefnum sínum.

Þegar Proxima vinnur með persónuupplýsingar fyrir viðskiptavin vegna smíði eða umsjónar vefs er hlutverk og ábyrgð aðila skilgreint í samningi eftir því sem við á. Þessi síða fjallar um eigin samskipti og starfsemi Proxima.

Vefkökur og tæknilegar upplýsingar

Vefurinn notar Independent Analytics til að fá yfirsýn yfir heimsóknir og notkun. Samkvæmt upplýsingum framleiðanda notar talningin ekki vafrakökur og eru mælingagögn geymd á vefnum sjálfum. IP-tala er notuð við úrvinnslu, meðal annars til að áætla staðsetningu og mynda dulbúið auðkenni, en er ekki vistuð óbreytt í mælingagögnunum.

Val þitt á ljósu eða dökku útliti er geymt í staðbundinni geymslu vafrans (localStorage) undir heitinu proxima-theme. Það er notað til að muna útlitsvalið. Þú getur breytt valinu á vefnum eða fjarlægt það með því að hreinsa vefgögn í vafranum.

Innskráning stjórnenda getur notað nauðsynlegar innskráningar- og notandastillingakökur. Tæknilegar upplýsingar geta einnig verið unnar vegna afhendingar vefsins, bilanagreiningar og öryggis.

Réttindi þín

Þú getur óskað eftir upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga þinna, aðgangi að þeim og leiðréttingu rangra upplýsinga. Að uppfylltum viðeigandi skilyrðum getur þú óskað eftir eyðingu, takmörkun vinnslu eða flutningi gagna og andmælt vinnslu. Byggi vinnsla á samþykki getur þú dregið það til baka án þess að það hafi áhrif á lögmæti fyrri vinnslu.

Sendu beiðni í gegnum sambandssíðuna. Almennt skal svara innan eins mánaðar; lögbundnar undantekningar geta átt við. Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Valkvæðir flokkar eru óvirkir þar til þú leyfir þá.