Fara í efni

VEFSÍÐUGERÐ

Vefur sem kemur þjónustunni þinni til skila.

Við hjálpum þér að skipuleggja efnið, hönnum og smíðum vef sem kynnir fyrirtækið þitt skýrt og auðveldar fólki að hafa samband, bóka eða kaupa.

Hvað á vefurinn að gera fyrir þig?

Á hann að kynna þjónustuna, afla fyrirspurna, taka við bókunum eða selja vörur? Við byrjum á markmiðunum og látum þau ráða uppbyggingu, efni og virkni vefsins.

Skýrt efni. Auðvelt að rata.

Við skipuleggjum þjónustulýsingar og aðrar upplýsingar þannig að gestir finni það sem þeir leita að. Skýrir textar, fyrirsagnir og tenglar hjálpa þeim að átta sig á þjónustunni og hvernig þeir geta nýtt sér hana.

Útlit sem hæfir þér.

Við veljum letur, liti og myndefni sem passa við fyrirtækið þitt og skapa heildstæða ásýnd. Hönnunin styður við efnið og gerir vefinn þægilegan í notkun.

Vefur sem miðast við þínar þarfir.

Hvort sem þú þarft einfalda kynningu, stærri þjónustuvef, netverslun eða ferðavef finnum við hæfilega lausn. Við ákveðum saman hvað þarf að vera til staðar við opnun og hvað getur beðið.

Vefur fyrir einyrkja

Kynning og fyrirspurnir

Einföld vefsíða með upplýsingum um þig og þjónustuna þína og sambandseyðublaði. Fyrir einyrkja sem vilja koma sér skýrt á framfæri á netinu.

Fyrirtækjavefur

Kynning · Þjónusta · Fyrirspurnir

Vefur sem kynnir fyrirtækið þitt, útskýrir þjónustuna og auðveldar fólki að hafa samband. Hentar þegar þú þarft skýra og aðgengilega kynningu á því sem þú býður.

Vefur í vexti

Þjónustusvið · Efnisflokkar · Kerfistengingar

Fyrir fyrirtæki með fleiri þjónustusvið, mikið efni eða þörf fyrir tengingar við önnur kerfi. Við skipuleggjum vefinn þannig að auðvelt sé að rata um hann og bæta við efni eftir þörfum.

Netverslun

Vörur · Greiðslur · Afhending

Netverslun þar sem auðvelt er að finna vörur, skoða upplýsingar og ganga frá kaupum. Við skipuleggjum vöruflokka, vörusíður og kaupferli með þarfir viðskiptavina þinna í huga.

Ferðavefur

Ferðir og bókanir

Vefur fyrir ferðaþjónustu þar sem ferðir og upplifanir fá skýra kynningu. Við skipuleggjum ferðalýsingar og upplýsingar fyrir gesti og mótum leiðina að fyrirspurn eða bókun.

Yfirfarið áður en vefurinn opnar.

Fyrir opnun förum við yfir framsetningu efnis og prófum helstu leiðir um vefinn. Við athugum hvort gestir geti fundið upplýsingar og lokið mikilvægum aðgerðum, svo sem að senda fyrirspurn eða ganga frá kaupum.

Yfirfarið í síma og tölvu.

Við yfirförum útlit og notkun í síma og á stærri skjám. Við prófum valmyndir, tengla, eyðublöð og aðra lykilvirkni.

Skýr afhending og leiðsögn.

Við afhendingu förum við yfir notkun vefsins og sýnum þér hvernig þú sinnir þeim efnisbreytingum sem þú vilt sjá um sjálfur. Við ræðum líka viðhald og möguleika á frekari þróun.

Spurt um vefsíðugerð

Þarf ég að koma með allt efnið?

Ekki endilega. Við byrjum á því sem þú átt, svo sem merki, myndum og texta um þjónustuna. Við hjálpum þér að skipuleggja efnið og sjá hvað vantar. Ef þörf er á nýjum texta eða myndvinnslu tökum við það sérstaklega fram í tilboðinu.

Get ég notað núverandi lén?

Já, þú getur áfram notað lénið þitt. Áður en nýr vefur tekur við skoðum við núverandi vefslóðir og þjónustur sem tengjast léninu, svo sem tölvupóst, og skipuleggjum yfirfærsluna.

Hvaða tækni verður notuð?

Það fer eftir því hvað vefurinn þarf að gera og hvernig þú vilt reka hann. Við veljum lausn sem hentar verkefninu og útskýrum hvað valið þýðir fyrir efnisbreytingar, viðhald og frekari þróun.

Hvað tekur verkefnið langan tíma?

Það fer eftir stærð vefsins, virkni og því hversu mikið efni er tilbúið. Þegar við höfum farið yfir verkefnið gerum við tímaáætlun með þér og ákveðum hvenær efni og endurgjöf þurfa að liggja fyrir.

Hvað á vefurinn þinn að gera?

Segðu okkur stuttlega frá fyrirtækinu, hvort þú sért með vef í dag og hverju þú vilt ná fram. Þú þarft ekki að vera með allt úthugsað til að hefja samtalið.

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Valkvæðir flokkar eru óvirkir þar til þú leyfir þá.